Jón Daði Böðvarsson var ekki valinn í landsliðshóp Íslands sem að mætir Frakklandi og Andorra í undankeppni EM2020.
Hér má sjá landsliðshópinn sem valinn var í hádeginu í dag í heild sinni.
„Hann er með svipuð meiðsli og Alfreð í kálfanum en það varð smá bakslag í meiðslum hans. Það getur alltaf gerst. Því miður getur hann því ekki verið með í næstu viku," sagði Erik Hamren landsliðsþjálfari í viðtali við Fótbolta.net fyrr í dag.
Jón Daði hefur verið að glíma við meiðsli í kálfa á þessu tímabili og lék síðast með liðinu í febrúar. Hann hefur komið við sögu í tuttugu leikjum á tímabilinu.
„Hef átt nokkuð erfitt uppdráttar með meiðsli þetta tímabilið og kemst ég þar með ekki með í næstu verkefni.
Leiðinlegur partur af þessari atvinnu en bara ein af mörgum hindrunum í þessu sem maður tæklar," skrifaði Jón Daði á Twitter nú síðdegis.
Vegna spurninga: hef átt nokkuð erfitt uppdráttar með meiðsl þetta tímabilið og kemst ég þar með ekki með í næstu verkefni.
— Jon Dadi Bodvarsson (@jondadi) March 14, 2019
Leiðinlegur partur af þessari atvinnu en bara ein af mörgum hindrunum í þessu sem maður tæklar 👍🏻
Athugasemdir