Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 14. mars 2019 16:45
Elvar Geir Magnússon
Jón Guðni byrjar gegn Valencia
Fylgst með í úrslitaþjónustu á forsíðu
Jón Guðni Fjóluson.
Jón Guðni Fjóluson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðvörðurinn Jón Guðni Fjóluson er í byrjunarliði Krasnodar sem mætir Valencia í Evrópudeildinni klukkan 17:55.

Jón Guðni er oftast á bekknum hjá rússneska liðinu en þar sem Alyaksandr Martynovich tekur út leikbann í kvöld þá fær Íslendingurinn tækifæri.

Jón Guðni var valinn í landsliðshópinn sem er að fara að mæta Andorra og Frakklandi.

Krasnodar tapaði fyrri leiknum 2-1.

Leikir kvöldsins:
17:55 Dynamo Kiev - Chelsea (Stöð 2 Sport 2) (0-3)
17:55 Krasnodar - Valencia (Stöð 2 Sport 3) (1-2)
17:55 Salzburg - Napoli (0-3)
20:00 Arsenal - Rennes (Stöð 2 Sport 2) (1-3)
20:00 Benfica - Dinamo Zagreb (0-1)
20:00 Inter - Frankfurt (0-0)
20:00 Slavia Prag - Sevilla (Stöð 2 Sport 3) (2-2)
20:00 Villarreal - Zenit (3-1)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner