Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari U21 karla, hefur valið hópinn sem mætir Tékklandi og Katar í vináttuleikjum. Um er að ræða fyrstu leiki liðsins undir stjórn hans og Eiðs Smára Guðjohnsen.
Ísland mætir Tékklandi á Pinatar á Spáni 22. mars klukkan 11:00 áður en liðið heldur til Katar og mætir þar heimamönnum 25. mars klukkan 15:30.
Eins og áður segir er um að ræða fyrstu leiki liðsins undir stjórn nýrra þjálfara og eru leikirnir liður í því að skoða leikmenn sem leika erlendis, ásamt þeim sem spila á Íslandi.
Í hópnum eru meðal annars bræðurnir Willum Þór og Brynjólfur Darri Willumssynir.
Hópurinn:
Elías Rafn Ólafsson | FC Midtjylland
Patrik Sigurður Gunnarsson | Brentford
Alfons Sampsted | IFK Norrköping
Axel Óskar Andrésson | Viking
Jón Dagur Þorsteinsson | Vendsyssel
Mikael Neville Anderson | Excelsior
Ari Leifsson | Fylkir
Hörður Ingi Gunnarsson | ÍA
Alex Þór Hauksson | Stjarnan
Kristófer Ingi Kristinsson | Willem II
Torfi Tímoteus Gunnarsson | KA
Willum Þór Willumsson | Bate Borisov
Daníel Hafsteinsson | KA
Stefán Teitur Þórðarson | ÍA
Kolbeinn Birgir Finnsson | Brentford
Sveinn Aron Guðjohnsen | Ravenna
Jónatan Ingi Jónsson | FH
Brynjólfur Darri Willumsson | Breiðablik
Dagur Dan Þórhallsson | Mjolndalen
Hjalti Sigurðsson | KR
Athugasemdir