Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. mars 2021 17:01
Aksentije Milisic
Belgía: Kolbeinn lék í mikilvægum sigri Lommel
Mynd: Lommel
Lommel 1-0 Westerlo
1-0 Marlos Moreno ('84)

Kolbeinn Þórðarson var í byrjunarliði Lommel í dag sem mætti Westerlo í belgísku B-deildinni.

Lommel vann öflugan sigur á Westerlo og komst þannig yfir gestina á töflunni.

Marlos Moreno gerði eina mark leiksins og kom það þegar sex mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Kolbeinn Þórðarson lék allan leikinn fyrir heimamenn í dag.

Lommel er nú í þriðja sætinu með 37 stig eftir 23 leiki. Liðið er tveimur stigum á eftir RFC Seraing en hefur spilað leik meira.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner