Sheffield Wed 1 - 2 Norwich
1-0 Jordan Rhodes ('7 )
1-1 Teemu Pukki ('61 )
1-2 Todd Cantwell ('77 )
1-0 Jordan Rhodes ('7 )
1-1 Teemu Pukki ('61 )
1-2 Todd Cantwell ('77 )
Norwich vann endurkomusigur á Sheffield Wednesday í eina leik dagsins í Championship-deildinni, næst efstu deild Englands.
Þetta átti fyrirfram að vera skyldusigur fyrir Norwich en leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Kanarífuglana. Jordan Rhodes kom Sheffield Wednesday í forystu á sjöundu mínútu leiksins.
Staðan var 1-0 í hálfleik fyrir Uglurnar en Teemu Pukki tókst að jafna metin þegar um klukkutími var liðinn af leiknum. Á 77. mínútu skoraði svo Todd Cantwell það sem reyndist vera sigurmarkð í leiknum.
Lokatölur 2-1 og Norwich er á leið beint aftur upp í ensku úrvalsdeildina. Það virðist fátt geta komið í veg fyrir það. Norwich er með tíu stiga forystu á toppi deildarinnar þegar tíu leikir eru eftir. Wednesday er aftur á sjö stigum frá öruggu sæti og útlitið ekki gott þar.
Athugasemdir