U21 landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson var í markinu hjá Frederica þegar liðið vann endurkomusigur gegn Fremad Amager í dönsku B-deildinni í dag.
Fremad Amager tók forystuna í leiknum en missti svo mann af velli með rautt spjald.
Staðan var 1-0 í hálfleik en Elías og félagar komu til baka og unnu leikinn 2-1.
Flottur útisigur hjá Fredericia sem situr í fimmta sæti dönsku B-deildarinnar.
Elías Rafn er í láni hjá Fredericia frá Midtjylland en hann mun að öllum líkindum fara á Evrópumótið með U21 landsliðinu síðar í þessum mánuði. Elías er tvítugur.
Athugasemdir