sun 14. mars 2021 21:00
Aksentije Milisic
Einkunnir Arsenal og Spurs: Smith Rowe maður leiksins
Mynd: Getty Images
Arsenal vann öflugan sigur á grönnum sínum í Tottenham Hotspur í dag en leikið var á Emirates leikvangnum.

Martin Odegaard og Alexandre Lacazette sáu til þess að Skytturnar verði með montréttinn næstu daga en þeir skoruðu mörk Arsenal. Erik Lamela gerði glæsilegt mark fyrir Tottenham en hann fékk einnig rautt spjald. Allt eftir að hann kom inn á sem varamaður.

Sky Sports gaf leikmönnum einkunnir fyrir frammistöðu sína í dag. Emile Smith Rowe var valinn maður leiksins og fékk hann átta í einkunn. Þá fékk Kieran Tierney einnig átta ásamt Gabriel.

Hjá gestunum þóttu Lucas Moura og Sergio Reguilon standa sig best en þeir fengu báðir 7. Harry Kane fékk þá 6 og Gareth Bale 5.

Arsenal: Leno (6), Cedric (7), Tierney (8), Luiz (7), Gabriel (8), Xhaka (7), Partey (7), Saka (6), Odegaard (7), Smith Rowe (8), Lacazette (7).

Varamenn: Pepe (6), Willian (Spilaði of lítið), Elneny (Spilaði of lítið).

Tottenham: Lloris (6), Doherty (4), Alderweireld (6), Sanchez (6), Reguilon (7), Hojbjerg (6), Ndombele (6), Moura (7), Bale (5), Son (6), Kane (6).

Varamenn: Lamela (6), Sissoko (6), Alli (6).

Maður leiksins: Emile Smith Rowe
Athugasemdir
banner
banner
banner