Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 14. mars 2021 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Fagnaði með því að öskra að fyrrum þjálfara sínum
Kevin Ellison.
Kevin Ellison.
Mynd: Getty Images
Hinn 42 ára gamli Kevin Ellison skoraði fyrir Newport County í 3-1 sigri á Morecambe í ensku D-deildinni.

Ellison var að mæta sínum gömlu félögum þar sem hann spilaði með Morecambe frá 2011 til 2020.

Derek Adams, núverandi þjálfari Morecambe, líkaði ekki við Ellison og lét hann æfa einan áður en samningur hans rann út síðasta sumar.

Ellison ákvað að leggja ekki skóna á hilluna og samdi frekar við Newport County.

Hann spilaði gegn sínu fyrrum félagi í gær og skoraði. Hann fagnaði með því að fara upp að þjálfaranum sem gaf honum ekki tækifæri og öskra að honum.

Myndband af þessu má sjá hér fyrir neðan.



Athugasemdir
banner