Deildin í Hvíta Rússlandi hófst um helgina og í dag átti BATE leik þegar liðið fékk Slutsk í heimsókn.
BATE, sem endaði í 2. sæti í deildinni á síðustu leiktíð, átti ekki í neinum vandræðum með gestina í dag og varð niðurstaðan öruggur 3-0 sigur.
Willum Þór Willumsson byrjaði á varamannabekk BATE í dag en hann kom inn af bekknum á 73. mínútu í stöðunni 2-0.
Góð byrjun hjá BATE á tímabilinu og vonandi er þetta það sem koma skal hjá Willum og félögum á þessari leiktíð.
Athugasemdir