Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. mars 2021 20:45
Aksentije Milisic
Myndband: Lacazette hitti ekki knöttinn en fékk vítaspyrnu
Mynd: Getty Images
Umdeilt atvik átti sér stað í leik Arsenal og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Arsenal vann leikinn með tveimur mörkum gegn engu en Alexandre Lacazette gerði sigurmarkið af vítapunktinum.

Lacazette var að komast í færi en þegar hann ætlaði að skjóta mistókst honum að hitta knöttinn. Davinson Sanchez kom á fullri ferð og ætlaði að komast fyrir skotið en kom þess í stað aðeins við Lacazette.

Michael Oliver, dómari leiksins, dæmdi vítaspyrnu og VAR ákvað að láta hann ekki skoða atvikið aftur. Leikmenn Tottenham voru ekki sáttur með dóminn.

Jose Mourinho, stjóri Tottenham, sagði að Oliver hafi gert mistök og að VAR hafi samþykkt mistök hans. Þetta atvik má sjá með að smella hérna.


Athugasemdir
banner
banner
banner