Þessa stundina eigast við Cagliari og Juventus í Serie A deildinni á Ítalíu.
Staðan í hálfleik er 0-3 fyrir gestina frá Tórínó og hefur Cristiano Ronaldo gert öll mörk liðsins.
Juventus var mikið gangrýnt eftir að það féll úr leik í Meistaradeild Evrópu í síðustu viku og þá sérstaklega Cristiano Ronaldo.
Þessi ótrúlegi leikmaður ákvað hins vegar að dvelja ekki lengi við það tap en hann er búinn að gera svokallaða fullkomna þrennu í fyrri hálfleiknum.
Á 9. mínútu skoraði hann með skalla eftir sendingu frá Juan Cuadrado, á þeirri 25 skoraði hann úr vítaspyrnu með hægri fæti og sjö mínútum síðar skoraði hann með vinstri fæti. Magnaður leikmaður.
⚽️ 09': Head
— Squawka News (@SquawkaNews) March 14, 2021
⚽️ 25': Right foot
⚽️ 32': Left foot
Cristiano Ronaldo has scored a perfect hat-trick in 32 minutes against Cagliari. 😤 pic.twitter.com/xKG5uNpgOH
Athugasemdir