Þýska félagið RB Leipzig hefur náð samkomulagi við hollenska framherjann Brian Brobbey en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Ajax í sumar.
Brobbey, sem er 19 ára gamall, hefur skorað 13 mörk og lagt upp önnur fimm mörk í 26 leikjum í öllum keppnum.
Samningur Brobbey við Ajax rennur út í sumar og ákvað leikmaðurinn að skoða möguleika sína og nú hefur hann komist að samkomulagi við Leipzig.
Julian Nagelsmann, þjálfari Leipzig, líkir Brobbey við Romelu Lukaku, sóknarmann Inter á Ítalíu.
„Miðað við líkamlegan styrk og hvernig hann spilar, þá er hann líkur Romelu Lukaku. Við verðum ánægður ef hann getur orðið leikmaður með sömu eiginleika og Lukaku," sagði Nagelsmann.
Athugasemdir