Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 14. mars 2021 17:20
Aksentije Milisic
Sjáðu sturlað mark Lamela - Rabona skot í fjærhornið
Reguilon trúði þessu ekki.
Reguilon trúði þessu ekki.
Mynd: Getty Images
Þessa stundina eigast við Arsenal og Tottenham í ensku úrvalsdeildinni en staðan er 1-1 þegar þetta er skrifað.

Arsenal byrjaði leikinn betur og átti hættulegri færi en það voru hins vegar þeir hvítklæddu sem náðu forystunni og það með hreint út sagt glæsilegu marki.

Argentínumaðurinn Erik Lamela fékk þá sendingu frá Lucas Moura inn í vítateig Arsenal. Lamela ákvað þá að taka hið svokallaða Rabona skot og það með þessum glæsilega árangri.

Hann klobbaði Thomas Partey og boltinn steinlá í fjærhorninu, algjörlega óverjandi fyrir Bernd Leno í marki Arsenal. Þetta stórkostlega mark má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner