Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 14. mars 2021 23:30
Aksentije Milisic
Solskjær hrósar Greenwood: Frábær í kvöld
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, var sáttur með 1-0 sigur á West Ham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Leikurinn var ekki hinn fjörugasti en United liðið gerði nóg og verðskuldaði sigurinn að lokum. Ole var sáttur með að liðið hélt hreinu enn eina ferðina og þá hrósaði hann framherjanum unga, Mason Greenwood.

„Þetta var erfitt en mér fannst við taka stjórnina á leiknum eftir um fimmtán mínútna leik. Byrjunin var ekki spes en við unnum okkur vel inn í leikinn," sagði Ole.

„Við erum með leikmenn í hæsta klassa og þeir náðu að skapa pláss og búa til færi eftir því sem leið á leikinn. Það er ekki auðvelt að halda hreinu en við vinnum mjög vel sem lið og þetta var verðskuldað."

„Greenwood var frábær í kvöld. Hann er allur að koma til. Hann er að þroskast eftir því sem tíminn líður," sagði Solskjær þegar hann var spurður út í framherjann unga.

Þá talaði Solskjær um það að Edinson Cavani, Anthony Martial, Paul Pogba og David De Gea séu allir að snúa aftur.
Athugasemdir
banner
banner
banner