Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 14. apríl 2019 15:00
Ívan Guðjón Baldursson
England: Sterling skaut Man City á toppinn
Mynd: Getty Images
Crystal Palace 1 - 3 Manchester City
0-1 Raheem Sterling ('15)
0-2 Raheem Sterling ('63)
1-2 Luka Milivojevic ('81)
1-3 Gabriel Jesus ('90)

Englandsmeistarar Manchester City eru komnir aftur á topp ensku úrvalsdeildarinnar eftir sigur gegn Crystal Palace. Man City stjórnaði leiknum en náði þó ekki að gera út um hann fyrr en undir lokin.

Raheem Sterling gerði bæði mörk City, það fyrra eftir glæsilega stungusendingu frá Kevin De Bruyne og það seinna eftir fasta og lága fyrirgjöf frá Leroy Sane.

Luka Milivojevic minnkaði muninn beint úr aukaspyrnu þar sem hann skaut boltanum lágt og fast í markhornið.

Sergio Agüero leit út fyrir að vera meiddur þegar honum var skipt af velli fyrir Gabriel Jesus á lokakaflanum en það var einmitt brasilíski framherjinn sem innsiglaði sigurinn á lokamínútunum.

Kevin De Bruyne lagði upp tvö af þremur mörkum City en þetta eru fyrstu mörkin sem hann leggur upp á úrvalsdeildartímabilinu.

Man City er með eins stigs forystu á Liverpool, sem tekur á móti Chelsea í stórleik helgarinnar.

City á erfitt leikjaplan framundan. Tveir næstu leikir eru gegn Tottenham á heimavelli og svo kemur heimsókn á Old Trafford.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 34 22 8 4 75 34 +41 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Man Utd 33 16 5 12 51 50 +1 53
7 Newcastle 33 15 5 13 69 54 +15 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Bournemouth 34 12 9 13 49 60 -11 45
11 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
12 Wolves 34 12 7 15 46 54 -8 43
13 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
14 Crystal Palace 34 10 9 15 44 56 -12 39
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 34 11 8 15 36 48 -12 33
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 34 3 7 24 33 92 -59 16
Athugasemdir
banner