Leeds United lagði Sheffield Wednesday að velli í Championship deildinni í gær með einu marki gegn engu.
Jack Harrison skoraði eina mark leiksins í síðari hálfleik og er þetta mikilvægur sigur fyrir Leeds sem er í 2. sæti, nú með þriggja stiga forystu á næsta lið.
Í fagnaðarlátunum eftir mark Harrison tók Pontus Jansson upp á því að kyssa liðsfélaga sinn Ezgjan Alioski, sem kemur frá Makedóníu, á kinnina.
Alioski tók ekki vel í kossinn og brást illa við. Hann ýtti Svíanum frá sér, sveiflaði höndunum til að reyna að kýla hann og sendi hann síðan til helvítis.
Don't think Alioski took kindly to being kissed 😂😂 #lufc #ncfc pic.twitter.com/PPGHCPeRwm
— Adam Savoury (@Saves1990) April 13, 2019
Athugasemdir