Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. apríl 2019 22:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Pogba: Aldrei búið - Komið að seinni hálfleiknum
Mynd: Getty Images
Paul Pogba, miðjumaður Manchester United, segir að einvíginu við Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar sé langt því frá lokið.

Man Utd tapaði fyrri leiknum 1-0 á heimavelli og fer á Nývang á þriðjudaginn.

Man Utd vann 2-1 sigur á West Ham í gær þar sem Pogba skoraði bæði mörkin af vítapunktinum. Eftir leikinn talaði Pogba um seinni leikinn gegn Barcelona.

„Við þurfum að hugsa um næsta leik, hvíla okkur og einbeita okkur að Barcelona. Þess vegna spilum við fótbolta, til að spila gegn svona liðum, að spila svona leiki," sagði Pogba.

„Átta liða úrslit í Meistaradeildinni, það er bara fallegt. Við verðum að njóta þess, gera okkar besta og treysta á okkur sjálfa."

„Þetta er ekki búið. Ég veit að þetta er Barcelona og á þeirra heimavelli, en þetta er aldrei búið. Það eru 90 mínútur eftir."

„Fyrri hálfleikurinn er búinn, núna er komið að seinni hálfleiknum."
Athugasemdir
banner
banner
banner