Mohamed Salah skoraði eitt af mörkum tímabilsins þegar Liverpool vann 2-0 sigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag.
Liverpool er komið aftur á toppinn með tveggja stiga forystu á Manchester City, sem á þó leik til góða. Framundan er mjög spennandi lokasprettur.
Liverpool er komið aftur á toppinn með tveggja stiga forystu á Manchester City, sem á þó leik til góða. Framundan er mjög spennandi lokasprettur.
Markið sem Salah skoraði í leiknum má sjá hérna. Hann skoraði það stuttu eftir að Sadio Mane hafði komið Liverpool yfir í leiknum.
Salah þaggaði þannig niður í fámennum stuðningsmannahópi Chelsea sem gerði sig að fíflum í síðustu viku. Stuðningsmennirnr voru á bar í Prag að syngja um að Salah væri hryðjuverkamaður. Salah er Egypti.
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, sagði að þetta væri „ógeðslegt" þegar hann talaði um málið á fréttamannafundi.
Athugasemdir