Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   mán 14. maí 2018 21:44
Egill Sigfússon
Logi Ólafs: Vítið á Halldór vitlaus dómur
Logi er ósigraður eftir fyrstu þrjá leikina
Logi er ósigraður eftir fyrstu þrjá leikina
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur sótti stig á Samsung völlinn í kvöld þegar þeir heimsóttu Stjörnumenn í 3.umferð Pepsí-deildar karla. Víkingar eru nú komnir með 5 stig úr fyrstu 3 leikjunum og eru ósigraðir.

Logi Ólafsson fannst lið sitt spila vel í seinni hálfleik og fannst liðið jafnvel eiga skilið meira úr leiknum.

„Mér fannst við spila seinni hálfleikinn mjög vel og áttum jafnvel meira skilið en við fengum, en úr því sem komið var þá var gott að fá stig."

Víkingar héldu hreinu í fyrstu 2 leikjum sínum en fengu 3 mörk á sig í dag. Logi sagði að fyrra vítið hafi aldrei verið víti en ítrekaði að liðið var mun betra í seinni hálfleik.

„Ég er búinn að fara í rannsóknir með vítið sem Halldór fékk á sig, það var ekki víti, hann sparkar bara hreinlega í boltann. Markið sem Þórarinn Ingi skorar var vel klárað, en við vorum bara betri í seinni en í þeim fyrri."

Víkingar hafa verið í miklum vandræðum með markmanns stöðuna en eru nú búnir að manna hana með þrem markmönnum og spilaði Andreas Larsen sinn fyrsta leik í dag og Loga fannst hann standa sig vel.

„Hann stóð sig bara mjög vel, við getum ekki ætlast til að hann sé að verja þessar vítaspyrnur og fyrsta mark Stjörnunnar var illverjanlegt. Nú erum við með Larsen, Morris og Aris, þannig við erum vel settir."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner