Stjarnan gerði 3-3 jafntefli við Víkinga á heimavelli í 3. umferð Pepsí-deildarinnar og Stjarnan hefur ekki unnið leik í mótinu.
Bæði lið fengu á sig tvö víti, Rúnar Páll þjálfari Stjörnunnar sá ekki vítin almennilega en fannst það seinna þó ódýrt við fyrstu sýn.
„Ég sá þetta ekki nógu vel en það litla sem ég sá þá fannst mér þetta frekar ódýrt en ég verð að sjá þetta aftur."
Stjarnan er búið að spila þrjá heimaleiki og er uppskeran aðeins 2 stig sem er rýr uppskera fyrir svona sterkt lið, Rúnar segist þó ekki vera farinn að hafa áhyggjur strax.
„Það er alltaf fúlt að safna ekki stigum, við þurfum að fækka mörkum á okkur, skorum alltaf helling af mörkum en þurfum ekki að hafa áhyggjur strax."
Guðjón Pétur Lýðsson leikmaður Vals er á förum og höfðu verið orðrómar um að Stjarnan ætlaði að kaupa hann, Rúnar Páll segir hins vegar að það komi enginn leikmaður fyrir lok gluggans.
„Nei við erum búnir að fá einn leikmann, er það ekki nóg? Við náum að stilla upp góðu 11 manna liði og góðum bekk svo við höfum ekki áhyggjur af því."
Ævar Ingi Jóhannesson er á góðri leið eftir að hafa fengið höfuðhögg segir Rúnar Páll sem er fagnaðarefni.
„Honum líður miklu betur þannig þetta lýtur bara bjartara út hjá honum."

Athugasemdir