Aron Einar Gunnarsson, landsliðsfyrirliði, sendi handboltalandsliðinu góðar kveðjur eftir að það tryggði sér sæti á HM með sigri á Litháen í gærkvöldi.
Aron Einar er mikill handboltaáhugamaður en hann æfði handbolta á yngri árum og var mjög efnilegur á því sviði.
Eldri bróðir hans, Arnór Þór, er hægri hornamaður í íslenska landsliðinu í handbolta. Arnór fékk að líta rauða spjaldið gegn Lithaén í gær eftir að hann kastaði óvart boltanum í andlitið á markverði Litháa í vítakasti.

Ísland á HM i handbolta enn eina ferdina, virkilega vel gert strákar og til hamingju.. janúar verdur veisla enn og aftur🎉💪 @arnorgunnarsson
— Aron Einar (@ronnimall) June 14, 2018
Aron Einar er í kapphlaupi við tímann til að ná leik Íslands og Argentínu á laugardaginn eftir erfið meiðsli. Aron og þjálfaralið Íslands hefur þó sagt að hann verði klár í slaginn.
Íslenska landsliðið fer til Moskvu í dag fyrir leikinn gegn Argentínu en Aron og Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, sitja fyrir svörum á fréttamannafundi á morgun.
Athugasemdir