Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. júlí 2018 15:03
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jón Dagur fékk hálftíma með aðalliði Fulham
Jón Dagur spilaði með aðalliði Fulham.
Jón Dagur spilaði með aðalliði Fulham.
Mynd: Getty Images
Unglingalandsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson lék síðasta hálftímann með Fulham í dag þegar liðið spilaði æfingaleik við Reading í Aldershot á Englandi.

Jón Dagur byrjaði á bekknum en kom inn á sem varmaður þegar hálftími var eftir.

Leikurinn endaði með markalausu jafntefli.

Jón Daði Böðvarsson er á mála hjá Reading en hann var ekki í leikmannahópi liðsins í dag.

Jón Dagur er 19 ára og hann gerði flotta hluti með ungalingaliðum Fulham í fyrra. Fulham er komið upp í ensku úrvalsdeildina en fróðlegt verður að sjá hvort Jón Dagur fari á láni fyrir næsta tímabil, haldi áfram að spila með ungalingaliðunum eða nái jafnvel að heilla Slavisa Jokanovic, þjálfara Fulham, og fái tækifæri í aðalliðinu.



Athugasemdir
banner
banner