Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 14. júlí 2018 09:00
Hafliði Breiðfjörð
Parkinson samtökin fengu andvirði uppboðanna á málverkum Tolla
Frá vinstri: Jóhann Rafnsson, sjórnarmaður Parkinson samtakanna, Tolli, Þorsteinn Arnarson, hæstbjóðandi eins verkanna, Sigurbjörg Anna Símonardóttir fjármálastjóri Fótbolta og Vilborg Jónsdóttir, formaður Parkinson samtakanna.
Frá vinstri: Jóhann Rafnsson, sjórnarmaður Parkinson samtakanna, Tolli, Þorsteinn Arnarson, hæstbjóðandi eins verkanna, Sigurbjörg Anna Símonardóttir fjármálastjóri Fótbolta og Vilborg Jónsdóttir, formaður Parkinson samtakanna.
Mynd: Fótbolti.net - Birgir Viðar Halldórsson
Frá vinstri: Tolli, Valdís Þórðardóttir og Ingimar Elí.
Frá vinstri: Tolli, Valdís Þórðardóttir og Ingimar Elí.
Mynd: Fótbolti.net - Birgir Viðar Halldórsson
Á dögunum stóðu Fótbolti.net og listamaðurinn Tolli fyrir uppboðum á nokkrum málverkum eftir þennan vinsæla listamann. Boðin voru upp þrjú Tollaverk og rann uppæðin óskert til Parkinsonsamtakanna. Lesendur vefsins tóku vel við sér, og söfnuðust 862.0000 kr. með uppboðunum.

Þau Vilborg Jónsdóttir og Jóhann Rafnsson, stjórnarmenn í Parkinsonsamtökunum tóku á móti styrknum.

„Stuðningur af þessu tagi er ómetanlegur fyrir starfsemina enda skiptir hver króna máli. Stærsta verkefni samtakanna núna er að koma upp sérstöku setri fyrir parkinsonsjúklinga þar sem þeir fá viðeigandi þjálfun og uppbyggingu og geta þannig spornað við sjúkdómnum”, segir Vilborg Jónsdóttir formaður Parkinsonsamtakanna.

Það vakti athygli í síðasta vináttulandsleik Íslands á móti Gana þegar 11 parkinsonsjúklingar gengu inn á völlinn ásamt landsliðum landanna tveggja.

„Með hjálp KSÍ og íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu hófum við vitundarvakningu um parkinsonsjúkdóminn í leik Íslands við Gana. Því miður erum við íslendingar ekki aðeins á toppnum á okkar fótboltaferli, heldur er Ísland í 2. sæti yfir dánartíðni parkinsonsjúklinga í heiminum,” segir Vilborg ennfremur.

Hæstbjóðendur verkanna þriggja voru sömuleiðis mjög ánægðir með að styðja við þetta verðuga verkefni. Það má segja að sjaldan falli eplið (boltinn) langt frá eikinni en einn af hæstbjóðendunum er Valdís Þórðardóttir, dóttir Þórðar Guðjónssonar knattspyrnukappa af Akranesi og frænka Björns Bergmanns Sigurðarsonar landsliðsmanns sem tók þátt í HM.

Þetta er í þriðja sinn sem Fótbolti.net og Tolli standa sameiginlega að slíku uppboði. Fótbolti.net er þakkláttur fyrir velvild Tolla með þessu samstarfi og mikil ánægja að geta látið gott af okkur leiða.
Athugasemdir
banner
banner
banner