Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 14. júlí 2018 16:36
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Southgate: Belgía er betra lið en við
Mynd: Getty Images
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Engalands, var hreinskilinn í svörum sínum eftir 2-0 tap gegn Belgíu í leiknum um bronsið á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi í dag.

„Belgía er betra lið en við," sagði Soutgate eftir leikinn.

„Við fengum degi minna til að undirbúa okkur og jafna okkur. Þetta var einum leik of mikið fyrir okkur."

„Belgía er lið í hæsta gæðaflokki og þeir hugsa líklega að þeir hefðu átt að fara lengra en þeir gerðu. Við sköpuðum vandamál fyrir þá en þeir eru með leikmenn í hæsta gæðaflokki."

„Leikmenn Belgíu eru á hátindi ferilsins en við hvergi nærri því og við vissum það alla keppnina."
Athugasemdir
banner
banner