Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 14. júlí 2019 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Benfica að fá Perin frá Juventus
Mattia Perin er að fara til Benfica
Mattia Perin er að fara til Benfica
Mynd: Getty Images
Portúgalska félagið Benfica er að ganga frá kaupum á ítalska markverðinum Mattia Perin.

Perin er 26 ára gamall og kom til Juventus frá Genoa fyrir 12 milljónir evra á síðasta ári.

Hann vonaðist til þess að skapa sér feril hjá Juventus en það verður ekkert úr því. Gianluigi Buffon er kominn aftur og verður Wojciech Szczesny til halds og trausts.

Samkvæmt Sky Italia er Benfica að ganga frá kaupum á Perin en hann mun kosta félagið 15 milljónir evra.

Hann verður lánaður til Benfica í eitt tímabil áður en félagið kaupir hann næsta sumar.

Athugasemdir
banner
banner
banner