Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, var kampakátur í leikslok eftir að HK hafði sigrað KA í Pepsi Max-deildinni í kvöld.
Með sigrinum en HK komið upp í áttunda sæti deildarinnar.
Með sigrinum en HK komið upp í áttunda sæti deildarinnar.
Lestu um leikinn: HK 2 - 1 KA
„Við ætluðum að leyfa þeim að vera með boltann og breika síðan hratt. Þeir tóku smá yfir á kafla í miðjum síðari hálfleik og settu okkur undir smá þrýsting. Við vorum þá að hlaupa út úr stöðum, alveg út og suður," sagði Brynjar eftir leikinn.
„Það er karakter hjá okkur að halda haus og fá ekki mark á sig. Síðan fengum við gott tækifæri í lokin og við tókum það þegar fimm mínútur voru eftir."
Brynjar notaði enga skiptingu í leiknum í dag.
„Það augnablik kom aldrei sem að mér fannst við þurfa að breyta til. Leikurinn var að spilast eins og við vildum. Menn voru að vinna vel, það var enginn þreyttur og engin meiðsli, þá fannst mér óþarfi að riðla skipulaginu."
„Við erum að líta í kringum okkur og mér sýnist vera lítið að gerast hjá flestum félögum. Við erum með puttann á púlsinum og ef eitthvað kemur upp þá tökum við stöðuna á því. Við þurfum að bæta við okkur 2-3 mönnum," sagði Brynjar að lokum.
Nánar er rætt við Brynjar hér í spilaranum að ofan.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir