Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 14. júlí 2019 23:30
Arnar Helgi Magnússon
Ekkert fararsnið á Havertz
Mynd: Getty Images
Kai Havertz hefur staðfest það að hann muni spila áfram hjá Bayern Leverkusen þrátt fyrir áhuga stærri liða.

„Það er alveg ljóst að ég mun vera hér áfram. Mér líður mjög vel hérna og ég er búinn að þróast mikið sem leikmaður hér og ég mun gera það áfram," segir Havertz.

„Sá tímapunktur mun koma að ég taki næsta skref en það er algjörlega óljóst hvenær það verður. Ég vil reyna að afreka eitthvað stærra áður en ég kveð Leverkusen."

Bayern Munchen hefur verið að fylgjast með leikmanninum en talið er að Leverkusen muni ekki skoða nein tilboð nema fyrir 90 milljónir evra eða meira.

Havertz skoraði sautján mörk á síðustu leiktíð og lagði upp þrjú.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner