Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 14. júlí 2019 11:30
Oddur Stefánsson
Mourinho: Inter verður að vinna deildina
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho hefur verið lifa sig inn í gömlu baráttuna á milli hans og Antonio Conte og hefur sett smá pressu á Conte með því að segja að hann verði að sigra Serie A.


Mourinho stýrði Inter árið 2010 og má færa rök fyrir að Inter hafið náð sínum hæðstu hæðum með Mourinho í stjóra stólnum.

Í viðtali við Gazetto dello sport sagði Mourinho „Þeir verða að vinna, ég er viss um að þeir vinna."

Hann var spurður út í framtíð hans sem þjálfari eftir hafa verið rekinn sem þjálfari Manchester United í desember.

„Núna er ég að læra þýsku því það er eina sem ég á eftir, ég kann ensku, spænsku, portúgölsku, frönsku og ítölsku."

„Auðvitað mun ég ekki útiloka neitt, ekki einu sinni þýskaland."
Athugasemdir
banner
banner