Breiðablik verður í hvítum varabúningum sínum þegar liðið mætir Stjörnunni í bikarúrslitum kvenna á Laugardalsvelli á föstudagskvöld klukkan 19:15.
Búningar liðanna eru of líkir og því var kastað upp á hvort félagið þyrfti að leika í varabúningum.
Búningar liðanna eru of líkir og því var kastað upp á hvort félagið þyrfti að leika í varabúningum.
Eftir að hafa varpað hlutkesti er ljóst að Stjarnan verður í bláum aðalbúningi sínum á meðan Breiðablik leiur í hvítu.
Stuðningsmenn Stjörnunnar ætla að hittast á Samsung-vellinum í Garðabæ klukkan 17:00 og hita upp. Um það bil klukkutíma fyrir leik verða fríar rútuferðir þaðan á Laugardalsvöll.
Stuðningsmenn Breiðabliks ætla að hittast klukkan 17:00 í tjaldi við félagssvæði Þróttar í Laugardal og þar verður hitað upp.
Miðasala á leikinn er hafin á tix.is
Athugasemdir