Jóhannes Karl, þjálfari ÍA var mjög ánægður með sína menn eftir sigurinn á Fram í dag og fannst sínir menn láta það líta auðveldlega út að loka á andstæðingana.
Lestu um leikinn: ÍA 2 - 0 Fram
„Við kannski létum það líta út þannig en það er ekkert auðvelt að láta Framarana svona út. þeir eru með hörkulið en við komum vel skipulagðir og þéttir inn í þennan leik, tilbúnir að pressa þá líka á stórum köflum í leiknum og það var það sem við gerðum. Við héldum þeim gjörsamlega niðri. Spiluðum svo fínan sóknarleik og hefðum getað skorað fleiri mörk að mínu mati,” sagði Jóhannes Karl.
ÍA var ekki með neitt sérstakt plan til þess að stoppa Guðmund Magnússon sem hefur verið heitur undanfarið heldur einbeitti sér að sóknarleik andstæðinganna í heild sinni.
„Að stoppa Framarana í að skora mörk og ef að Gummi er inn á hættusvæðinu þar sem er líklegt að hann skori mörk þá vorum við vel þéttir þar og skipulagðir og vorum góðir í að gefa völdin og vinna fyrsta boltann sem er hættan hjá Frömurum þegar Gummi er inn í teig sérstaklega,” sagði Jóhannes Karl.
ÍA styrkti hópinn með þremur nýjum leikmönnum og Jeppe Hansen hefur verið öflugur síðan hann kom til liðsins.
„Við styrktum hópinn okkar með þessum þremur leikmönnum út af því að við töldum að þeir myndu koma með eitthvað nýtt í leikmannahópinn. Jeppe er búinn að spila meira og standa sig frábærlega. Hann og Stefán Teitur hafa verið mjög samstilltir og unnið vel fyrir liðið fyrst og fremst verið frábærir í því. Svo eru þeir að skora mörk líka og geta skorað mörk þannig að það er rosalega mikilvægt,” sagði Jóhannes Karl.
Viðtalið við Jóhannes Karl má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir