Þór/KA tryggði sér í gær farseðil í 32-liða úrslit Meistaradeildar kvenna eftir markalaust jafnefli gegn Ajax í lokaleik í riðlakeppni.
Þór/KA og Ajax enduðu jöfn að stigum með sjö stig. Ajax skoraði fleiri mörk en bæði liðin komust hins vegar áfram á endanum.
Stephanie Bukovec, markvörður Þórs/KA, var valin besti leikmaðurinn í riðlakeppninni en hún hélt hreinu í öllum þremur leikjunum.
Bukovcec er króatísk landsliðskona en hún kom til Þórs/KA í síðasta mánuði.
Clean sheet in 3 games! Player of the tournament, Stephanie Bukovec!! #UWCL #ÞÓRKA #fotboltinet pic.twitter.com/ujmR9WojIp
— Þór/KA (@thorkastelpur) August 13, 2018
Athugasemdir