Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   þri 14. ágúst 2018 20:43
Egill Sigfússon
Viktor Jóns: Væri gaman að taka markakóngstitilinn
Viktor skoraði þrennu í kvöld
Viktor skoraði þrennu í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur fékk Magna í heimsókn í kvöld í 16. umferð Inkassó-deildar karla og vann 5-3 sigur í einum skemmtilegasta leik sumarsins. Viktor Jónsson leikmaður Þróttar skoraði þrennu og sagði tilfinninguna góða þótt liðið gæti spilað miklu betur.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 5 -  3 Magni

„Tilfinningin er virkilega góð en samt svolítið sem er að naga mann þar sem við hefðum getað spilað miklu betur í þessum leik en ég get ekki kvartað eftir þrjú stig og fimm mörk."

Þróttur eru að nálgast toppsætin og Viktor segir að það sé markmiðið að komast upp en þeir vita að það verður erfitt.

„Við erum ennþá svolítið á eftir topp tveim en eins og í gær vorum við ennþá sex stigum á eftir fjórða sætinu en við tökum bara hvern leik fyrir sig og reynum að koma okkur upp í þessari toppbaráttu."

Viktor hefur skorað 14 mörk í sumar, einu minna en Guðmundur Magnússon leikmaður Fram. Viktor segir það fyrst og fremst markmiðið að vinna leiki en það væri gaman að geta unnið markakóngstitilinn líka.

„Já auðvitað væri það gaman en það svosem ekki markmið sem ég er að einblína á, ég reyni bara að skora í hverjum einasta leik og spila fyrir liðið og allt annað er bónus. Auðvitað horfir maður á það og það er alltaf á bakvið eyrað hjá mér."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner