Extra mót Fjölnis í 6.flokki karla og kvenna fór fram laugardaginn síðasta, þann 10.ágúst á grassvæði félagsins í Dalhúsum. Spilað var á 12 völlum en öll þrjú grassvæði félagsins voru notuð.
Yfir 900 iðkendur tóku þátt frá 18 félögum, samtals 122 lið og voru mörg hver með lið bæði í karla og kvennaflokki. Alls voru spilaðir 310 leikir á mótinu.
Yfir 900 iðkendur tóku þátt frá 18 félögum, samtals 122 lið og voru mörg hver með lið bæði í karla og kvennaflokki. Alls voru spilaðir 310 leikir á mótinu.
Frábær tilþrif sáust og fóru iðkendur brosandi í burtu.
Myndir og myndband frá mótinu má finna á facebook síðu mótsins
Háttvísisverðlaun KSÍ fengu lið Breiðablik í karlaflokki og KFR í kvennaflokki en mjög erfitt var að gera upp á milli liðanna sem voru til félagi sínu til sóma.
Fjölnir þakkar leikmönnum og foreldrum/forráðamönnum fyrir komuna í Grafarvoginn.
Sjáumst í ágúst 2020.
Athugasemdir