Leikið í Danmörku, Noregi og Svíþjóð
Í norsku úrvalsdeildinni fóru fram þrír leikir í kvöld. Matthías Vilhjálmsson lék allan leikinn fyrir Vålerenga í 1-1 jafntefli gegn Stabæk á útivelli.
Valerenga er í sjötta sæti, en í áttunda sæti deildarinnar er Viking. Samúel Kári Friðjónsson, lánsmaður frá Vålerenga, var í leikbanni og lék ekki með Viking í 2-1 sigri gegn Sarpsborg.
Axel Óskar Andrésson er enn að glíma við meiðsli og var því ekki með Viking í dag.
Bodo/Glimt vann 2-1 útisigur gegn Kristiansund. Oliver Sigurjónsson var ekki í leikmannahópi Bodo/Glimt sem er á toppi deildarinnar eftir þennan sigur.
Manchester United vann nauman 1-0 sigur gegn Kristiansund í æfingaleik á dögunum.
Heil umferð í úrvalsdeildinni í Svíþjóð
Í úrvalsdeild kvenna í Svíþjóð fór fram heil umferð í kvöld. Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn í 3-0 sigri Rosengård á Bunkeflo. Rosengård er með fjögurra stiga forskot á toppi deildarinnar og er á góðu skriði. Þær stefna á að endurheima titilinn eftir að hafa ekki unnið hann síðustu þrjár leiktíðir.
Hin 21 árs gamla Andrea Thorisson kom inn á hjá Bunkeflo á 77. mínútu. Bunkeflo er í næst neðsta sæti með fjögur stig.
Mættur á leik hjá FC Rosengård í DamAllsvenska og @glodisperla í starting í nágrannaslag. Umgjörðin hérna er geggjuð og stuðningsmenn mættir 1 tíma fyrir leik. Gætum lært aænsku deildinni heima á Íslandi. Hlakka mikið til fylgjast með þessum leik. #fotboltinet pic.twitter.com/k2BDUlUQpp
— orri rafn (@OrriRafn) August 14, 2019
Elísabet Gunnarsdóttir stýrði Kristianstad til 3-1 sigurs gegn Vaxjö. Sif Atladóttir lék allan leikinn, en Svava Rós Guðmundsdóttir var allan tímann á bekknum.
Kristianstad er með 22 stig í sjötta sæti, átta stigum á eftir toppliði Rosengård.
Þá spilaði Anna Rakel Pétursdóttir frá 35. mínútu í 2-1 tapi Linköping gegn botnliði Kungsbacka. Linköping, sem er í fimmta sæti, spilaði einum færri frá 30. mínútu eftir að rautt spjald fór á loft.
Það gengur lítið hjá Guðrúnu Arnardóttur og Ingibjörgu Sigurðardóttur í Djurgården. Þær töpuðu 4-2 gegn Eskilstuna og eru í tíunda sæti með níu stig. Ingibjörg lék allan leikinn í dag, en Guðrún var allan tímann á bekknum. Guðbjörg Gunnarsdóttir er ólétt og var því ekki með.
Kjartan Henry spilaði í tapi
Kjartan Henry Finnbogason var í byrjunarliði Vejle þegar liðið tapaði 1-0 Fredericia á heimavelli sínum í dönsku B-deildinni.
Eina mark leiksins skoraði Kristian Kirkegaard eftir 13 mínútna leik. Það dugði Fredericia til sigurs.
Svekkjandi tap fyrir Vejle sem er í sjöunda sæti deildarinnar með fjögur stig eftir fjóra leiki. Í fyrstu fjórum deildarleikjum tímabilsins hefur Kjartan skorað tvö mörk.
Athugasemdir