mið 14. ágúst 2019 13:30
Magnús Már Einarsson
Gary Neville hefur engan áhuga á að fara aftur í þjálfun
Neville starfar hjá Sky Sports í dag.
Neville starfar hjá Sky Sports í dag.
Mynd: Getty Images
Gary Neville, fyrrum varnarmaður Manchester United, segist hafa engan áhuga á að spreyta sig meira sem þjálfari.

Neville var fjóra mánuði við stjórnvölinn hjá Valencia tímabilið 2015/2016 auk þess sem hann var í þjálfaraliði enska landsliðsins frá 2012 til 2016.

„Það er ekki neinn hluti af mér sem vill fara út á æfingavöll þegar ég vakna á morgunanna," sagði Neville.

Neville gekk illa hjá Valencia en hann var rekinn eftir dapurt gengi liðsins.

Í dag er Neville sérfræðingur hjá Sky Sports auk þess sem hann á hlut í Salford City sem leikur í ensku D-deildinni. Hann er einnig að sinna ýmsum öðrum viðskiptum.
Athugasemdir
banner
banner
banner