Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mið 14. ágúst 2019 13:06
Elvar Geir Magnússon
Lífvörður fylgir Özil hvert fótmál
Lífvörður með Özil.
Lífvörður með Özil.
Mynd: Mirror
Lífvörður gætir Mesut Özil, leikmanns Arsenal, allan sólarhringinn en meðfylgjandi mynd var tekin í morgun.

Eftir að hann og liðsfélagi hans, Sead Kolasinac, lentu í hnífamönnum í síðasta mánuði hafa þeir og fjölskylda hans fengið hótanir.

Óttast er um öryggi þeirra og léku þeir ekki með Arsenal í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar, 1-0 sigrinum gegn Newcastle.

Kolasinac og Özil lentu í hræðilegri lífsreynslu í lok júlí er tveir menn vopnaðir hnífum reyndu að ræna þá. Kolasinac barðist á móti og flúðu árásarmennirnir vettvang. Báðir sluppu ómeiddir en lögreglan rannsakar málið.

„Ég veit ekki hvort þeir muni spila um næstu helgi gegn Burnley," sagði Unai Emery, stjóri Arsenal, á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner