Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 14. ágúst 2019 18:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lukaku: Hérna færðu að kynnast alvöru vinnu
Mynd: Getty Images
Romelu Lukaku er ánægður með það að vera kominn til Ítalíu. Hann fékk félagaskipti frá Manchester United til Inter í síðustu viku eftir tveggja ára dvöl hjá United.

Hann skoraði fjögur mörk í fyrsta leik með Inter.

Lukaku, sem er 26 ára, var ekki í plönum Ole Gunnar Solskjær sem kaus frekar að nota Anthony Martial og Marcus Rashford.

Lukaku er ánægður með fyrstu dagana á Ítalíu þar sem hann fær að kynnast „alvöru vinnu".

„Þetta er erfitt, þetta er öðruvísi," sagði Lukaku þegar hann var spurður út æfingarnar á Ítalíu, en þetta kemur fram á Goal.com. „Á Englandi var það mikil vinna, en hérna færðu að kynnast alvöru vinnu."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner