Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 14. ágúst 2019 22:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sjáðu viðbrögð Klopp við vítavörslu Adrian
Jurgen Klopp.
Jurgen Klopp.
Mynd: Getty Images
Þýski knattspyrnustjórinn Jurgen Klopp vann í kvöld sinn annan titil hjá Liverpool.

Klopp stýrði Liverpool til sigurs í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð og núna í kvöld var Liverpool að vinna Ofurbikar Evrópu þar sem sigurvegarar Meistaradeildarinnar og Evrópudeildarinnar mætast.

Liverpool vann Chelsea eftir vítaspyrnukeppni.

Spænski markvörðurinn Adrian, sem Liverpool fékk á frjálsri sölu eftir að Simon Mignolet fór til Club Brugge, varð síðustu vítaspyrnuna frá Tammy Abraham. Adrian kom til Liverpool á frjálsri sölu eftir að hafa leikið með West Ham síðustu ár.

Klopp var hæstánægður þegar Adrian varði spyrnuna eins og sjá má hér að neðan.



Athugasemdir
banner
banner
banner