Bernardo Silva kom inn á sem varamaður hjá Manchester City í 4-0 sigrinum á Bournemouth í gær.
Bernardo hefur mikið verið orðaður við Barcelona en hann hefur byrjað fyrstu tvo leiki Man City í ensku úrvalsdeildinni á varamannabekknum.
Pep Guardiola sagði á dögunum að hann hafi ekki hugmynd um hvort að Silva verði áfram hjá félaginu eða ekki.
Nú virðist allt stefna í það að Silva fari til Barcelona og er það einungis tímaspursmál hvenær skiptin ganga í gegn. Rétt í þessu var Silva með skilaboð til stuðningsmanna Man City á Twitter.
„Frábær frammistaða hjá liðinu og mögnuð stemning á vellinum. Ég vil líka þakka öllum á leikvangnum fyrir þessi fallegu augnablik og stuðninginn sem þið hafið sýnt mér," skrifaði Silva.
Athugasemdir