Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 14. september 2018 11:17
Magnús Már Einarsson
Breiðablik í hvítum búningum í úrslitaleiknum
Breiðablik-Stjarnan klukkan 19:15 á morgun
Blikar verða hvítir á morgun.
Blikar verða hvítir á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik verður í hvítum varabúningum sínum í úrslitaleik Mjólkurbikars karla gegn Stjörnunni á morgun.

Leikur liðanna hefst á Laugardalsvelli klukkan 19:15 annað kvöld.

Stjarnan verður í bláum aðalbúningi sínum en varpað var hlutkesti upp á hvort liðið yrði í varabúningum.

Blikar verða í hvítri treyju og grænum stuttbuxum í leiknum.

Það sama var uppi á teningnum í bikarúrslitaleik kvenna í síðasta mánuði en þá voru Blikar í varabúningum gegn Stjörnunni.

Miðasala á leikinn er í gangi á tix.is
Athugasemdir
banner
banner
banner