Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 14. september 2018 10:30
Magnús Már Einarsson
Shaw getur spilað á morgun þrátt fyrir höfuðhöggið
Mynd: Getty Images
Luke Shaw, vinstri bakvörður Manchester United, gæti komið við sögu í leik liðsins gegn Watford um síðustu helgi.

Shaw var borinn af velli í leik Englands og Spánar um síðustu helgi eftir þungt höfuðhögg sem hann fékk eftir árekstur við Dani Carvajal.

Engin eftirköst hafa komið eftir höfuðhöggið og Shaw hefur fengið grænt ljós frá læknum Manchester United til að spila á morgun. Óvíst er þó hvort að hann verði í byrjunarliðinu.

„Samkvæmt lækni okkar þá getur hann spilað," sagði Jose Mourinho, stjóri Manchester United, á fréttamannafundi í dag.

„Það sem við þurfum að skoða er hvort við látum hann spila þar sem hann hefur ekkert æft með liðinu í vikunni."
Athugasemdir
banner
banner
banner