Í nýjasta þætti Fimleikafélagsins er Steven Lennon, sóknarmanni FH, fylgt eftir og fáum við innsýn inn í líf Skotans sem atvinnumanns á íslandi.
Í þættinum hittir Lennon söngvarann Jón Jónsson og gera þeir upp atvikið þegar Jón fótbraut Lennon í leik árið 2011. En Lennon, sem var leikmaður Fram á þessum tíma, segir að brotið hafi næstum því bundið enda á feril sinn.
Að lokum fer Lennon yfir komandi átök í Pepsi deildinni en FH-ingar eru í harði baráttu við KR um Evrópusæti. Steven er bjartsýnn og telur að ef FH vinni þá leiki sem eftir eru þá tryggi það Evrópusæti.
Næsti leikur FH er í Víkinni þar sem liðið heimsækir Víking Reykjavík á sunnudag kl. 14.00.
Athugasemdir