Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 14. september 2019 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Stórliðin þrjú tilbúin eftir hlé
Barcelona mætir Valencia
Mynd: Getty Images
Spænski boltinn fór aftur af stað í gær eftir landsleikjahlé en í dag mæta stórliðin þrjú til leiks.

Real Madrid byrjar á heimaleik gegn Levante fyrir hádegi, sem verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Leganes tekur svo á móti Villarreal áður en Atletico Madrid heimsækir Real Sociedad.

Að lokum á Barcelona stórleik gegn Valencia. Spánarmeistararnir hafa farið illa af stað án lykilmanna og eru með fjögur stig eftir þrjár umferðir.

Lionel Messi og Ousmane Dembele verða líklega ekki með og þá var Samuel Umtiti að bætast við meiðslalistann. Luis Suarez er hins vegar kominn aftur í hópinn eftir stutta fjarveru.

Atletico er með fullt hús stiga á toppinum og Real Madrid er með fimm stig.

Leikir dagsins:
11:00 Real Madrid - Levante (Stöð 2 Sport)
14:00 Leganes - Villarreal
16:30 Real Sociedad - Atletico Madrid (Stöð 2 Sport 2)
19:00 Barcelona - Valencia (Stöð 2 Sport 2)
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 31 24 6 1 67 20 +47 78
2 Barcelona 31 21 7 3 62 34 +28 70
3 Girona 31 20 5 6 63 39 +24 65
4 Atletico Madrid 31 19 4 8 59 36 +23 61
5 Athletic 31 16 9 6 51 29 +22 57
6 Real Sociedad 31 13 11 7 45 33 +12 50
7 Valencia 31 13 8 10 34 32 +2 47
8 Betis 31 11 12 8 38 37 +1 45
9 Getafe 31 9 12 10 37 43 -6 39
10 Villarreal 31 10 9 12 49 54 -5 39
11 Osasuna 31 11 6 14 36 44 -8 39
12 Las Palmas 31 10 7 14 29 35 -6 37
13 Sevilla 31 8 10 13 39 44 -5 34
14 Alaves 31 8 8 15 26 38 -12 32
15 Mallorca 31 6 13 12 25 36 -11 31
16 Vallecano 31 6 13 12 25 38 -13 31
17 Celta 31 6 10 15 33 46 -13 28
18 Cadiz 31 4 13 14 21 41 -20 25
19 Granada CF 31 3 8 20 32 60 -28 17
20 Almeria 31 1 11 19 30 62 -32 14
Athugasemdir
banner
banner