Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 14. september 2020 14:30
Magnús Már Einarsson
Rose vissi ekki að hann myndi missa númerið
Mynd: Getty Images
Vinstri bakvörðurinn Danny Rose er væntanlega á förum frá Tottenham. Fyrir helgi kynnti Tottenham treyjunúmer leikmanna fyrir tímabilið og Roes var þar ekki á lista.

Rose hefur verið með treyju númer 3 hjá Tottenham en The Athletic segir að hann hafi ekkert vitað af því að hann myndi missa númerið fyrir tímabilið.

Jose Mourinho er með Ben Davies, Ryan Sessegnon og hinn 18 ára gamla Dennis Cirkin á undan Rose í röðinni.

Rose, sem var í láni hjá Newcastle síðari hlutann á síðasta tímabili, en hann æfir þessa dagana með U23 ára liði Tottenham.

Ítalska félagið Genoa vill fá Rose í sínar raðir sem og félög á Spáni, Tyrklandi og Englandi.
Enski boltinn - Tottenham menn hafa trú á Mourinho
Athugasemdir
banner
banner
banner