Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 14. október 2021 10:00
Brynjar Ingi Erluson
Pochettino: Messi á skilið að vinna Ballon d'Or
Fær Lionel Messi Ballon d'Or verðlaunin?
Fær Lionel Messi Ballon d'Or verðlaunin?
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, þjálfari Paris Saint-Germain, greindi frá því hvaða leikmenn hann myndi hafa í efstu þremur sætunum um Ballon d'Or verðlaunin en Lionel Messi er í efsta sæti listans.

Pochettino tók við PSG af Thomas Tuchel fyrr á þessu ári og stýrði liðinu til sigurs í franska bikarnum.

PSG fékk mikinn liðsstyrk í sumar og er hann með einn dýrasta hóp heims um þessar mundir.

Verðlunin fyrir besta leikmann heims eru afhent í næsta mánuði en hann valdi þrjá bestu leikmennina á þessu ári.

„Lionel Messi ætti klárlega að vinna þessi verðlaun og ef ég væri ekki að þjálfa hann þá myndi ég samt segja Messi. Ég svara alltaf með hjartanu og segi það sem mér finnst," sagði Pochettino.

„Lewandowski og Cristiano koma svo næstir á eftir honum," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner