Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   mið 14. nóvember 2018 10:40
Elvar Geir Magnússon
Birkir Már æfði ekki með hópnum
Icelandair
Birkir Már er tæpur fyrir leikinn á morgun.
Birkir Már er tæpur fyrir leikinn á morgun.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í þessum skrifuðu orðum er íslenska landsliðið að æfa á keppnisvellinum í Brussel, King Baudouin leikvangnum.

Annað kvöld, 19:45 að íslenskum tíma, verður leikið gegn Belgíu í Þjóðadeildinni.

Í morgun var tilkynnt að Birkir Bjarnason gæti ekki tekið þátt vegna meiðsla.

Þá er Birkir Már Sævarsson mjög tæpur fyrir leikinn en hann er ekki að æfa með hópnum núna heldur er hann í skokki með Frikka sjúkraþjálfara.

Það gæti skýrst á eftir hvort Birkir Már verði með á morgun en framundan er fréttamannafundur hjá Erik Hamren.

Eftir fundinn mun Fótbolti.net birta sínar pælingar um líklegt byrjunarlið á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner