Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 14. nóvember 2018 21:37
Brynjar Ingi Erluson
Cahill lánaður frá Chelsea í janúar
Gay Cahill
Gay Cahill
Mynd: Getty Images
Gary Cahill, varnarmaður Chelsea á Englandi, verður að öllum líkindum lánaður frá félaginu í janúar.

Cahill er 32 ára gamall og hefur eytt síðustu sex árum á ferlinum hjá Chelsea þar sem hann hefur getið sér gott orð.

Hann er að nálgast 300 leiki fyrir Chelsea en það er þó óvíst að hann nái þeim merka áfanga þar sem félagið ætlar að losa sig við hann í janúar.

Cahill verður samningslaus næsta sumar en Chelsea vill losa sig við hann í janúar og verður hann því að öllum líkindum lánaður.

Varnarmaðurinn öflugi kom frá Bolton árið 2012 en hann hefur spilað rúmlega 400 leiki í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner