Gerard Pique, miðvörður Barcelona, mætti í spænska spjallþáttinn 'La Resistencia' í gær og sagði hann þar frá því að Jordi Alba fái far hjá föður sínum á æfingar Katalóníustórveldisins.
Pique fékk spurningu um hvað ungstirnið Ansu Fati borðaði í morgunmat.
„Það er í hreinskilni sagt ekki eitthvað sem ég hef hugsað um," sagði Pique.
Fati, sem hefur slegið í gegn með Barcelona á tímabilinu, er aðeins 17 ára gamall og er ekki kominn með bílpróf. Þáttarstjórnandinn spurði Pique að því hvernig Fati kæmist á æfingar.
„Faðir hans skutlar honum. Jordi Alba fær líka far með föður sínum" sagði Pique, en hann hélt því fram í þættinum að hinn 31 árs gamli Alba væri ekki með bílpróf.
Athugasemdir