Það styttist í leik Tyrklands og Íslands í undankeppni EM en búið er að loka nokkrum götum í kringum Türk Telekom leikvanginn í Istanbúl þar sem leikurinn mun fara fram.
Leikurinn sjálfur hefst 20:00 að staðartíma en það er klukkan 17:00 að íslenskum tíma.
Leikurinn sjálfur hefst 20:00 að staðartíma en það er klukkan 17:00 að íslenskum tíma.
Íslenskum fjölmiðlamönnum var ráðlagt að mæta tímanlega til að forðast umferðarteppu og eru menn mættir á leikvanginn. Þar hafa móttökurnar verið fyrsta flokks.
Rosaleg öryggisgæsla er í kringum leikinn og fjölmennar sveitir lögreglumanna eru áberandi.
Hér má sjá stutt myndband þar sem sýnt er bak við tjöldin.
Bak við tjöldin í fjölmiðlaaðstöðu Türk Telekom vallarins. Svo sannarlega lognið á undan storminum. #fotboltinet 🇹🇷 pic.twitter.com/PB9Fkftc2Q
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) November 14, 2019
Athugasemdir