Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 14. nóvember 2020 09:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Grealish: Samanburðurinn við Mount pirrandi
Mount, Sancho og Grealish
Mount, Sancho og Grealish
Mynd: Getty Images
„Þetta er í raunininn svolítið pirrandi því hann fær örugglega stundum gagnrýni út af því. Mér finnst hann frábær leikmaður og held að við séum ekki einu sinni að berjast um sömu stöðuna," segir Jack Grealish.

Grealish var spurður út í samanburðinn á Mason Mount þegar kemur að enska landsliðinu en báðir geta þeir leyst hlutverk á miðjunni sem og úti á vinstri vængnum.

Þeir áttu báðir góðan leik þegar England vann Írland 3-0 á fimmtudag. Það var annar byrjunarliðsleikur Grealish með landsliðinu.

„Ég elska Mason og finnst hann frábær leikmaður. Ef eitthvað er finnst mér hann vanmetinn, hann á allt hrós skilið," sagði Grealish.

Southgate hefur valið Mason Mount fram yfir Grealish í verkefnum til þessa og hefur mikil umræða skapast á Englandi þar sem stuðningsmenn Grealish eru háværir.
Athugasemdir
banner